Inner Wheel Ísland

Tendrum ljós

Inner Wheel Ísland

Fyrsti Inner Wheel klúbburinn á Íslandi var stofnaður 15.mars 1973 í Reykjavík. Á Íslandi eru klúbbarnir sex og saman mynda þeir Umdæmi 136 sem stofnað var í nóvember 1987.

Markmið samtakanna

Að auka sanna vináttu
Að efla mannleg samskipti
Að auka alþjóðlegan skilning

Hvað er Inner Wheel?

Inner Wheel eru samtök kvenna sem tengjast núverandi eða fyrrverandi Rótarí félögum, núverandi eða fyrrverandi Inner Wheel félögum, sem og kvenna sem boðist hefur að gerast félagar í Inner Wheel klúbbi. Samtökin eru með allra stærstu sjálfboðaliðasamtökum kvenna á heimsvísu. 

Markmið samtakanna

Að auka sanna vináttu

Að efla mannleg samskipti

Að auka alþjóðlegan skilning

Hver sú kona sem samsamar sig við þessi þrjú megin markið Inner Wheel samtakanna getur gengið í hreyfinguna. Félagar ná þessum markmiðum með þátttöku í klúbbastarfi, sem felur í sér stjórnarstörf, fjáraflanir, samveru og gleði, í bland við vináttu og sameiginlegt markmið um að þjóna nærsamfélaginu. Félagar veita verklega aðstoð sem og fjárhagslega hvenær sem áföll bresta á, hvort sem það er í nærsamfélaginu, á landsvísu eða alþjóðlega, bæði vegna náttúruhamfara sem og fyrir fólk á stríðsþjáðum svæðum.

Einkunnarorð ársins 2023 - 2024

Tendrum ljós

International Inner Wheel velur á hverju ári nýtt verkefni sem jafnframt fær tákn og slagorð. Slagorð núverandi tímabils er „Tendrum ljós.“

Sex klúbbar á Íslandi

Félagar geta einnig sótt fundi hjá Inner Wheel klúbbi í hvaða landi sem er og geta gengið að því vísu að vera alls staðar velkomnir.

Fréttir og tilkynningar

Fréttir

Myndir frá sameiginlegum fundi InnerWheel klúbba í janúar 2024

Umdæmi 136 þakkar samveruna á sameiginlegum fundi allra InnerWheel klúbba þann 13. janúar sl. Hjálagðar eru myndir frá fundinum. Fundargerð má finna inni á skjalasafni ...
Lesa Meira →
Fréttir

Jólakveðja 2023

Umdæmi 136 óskar ykkur gleðilegra jóla og gæfuríks árs, með þakklæti fyrir allt liðið.
Lesa Meira →
Fréttir

Sameiginlegur hádegisfundur allra IW klúbba 13. janúar 2024

Fundarboð: 13. janúar 2024 kl. 12:30 verður sameiginlegur hádegisfundur allra Inner Wheel klúbbanna haldinn í Skíðaskálanum Hveradölum.
Lesa Meira →

Inner Wheel eru alþjóðasamtök sem mynda hjólið í alþjóðamerki Rotary og eru hreyfingunni til styrktar.

Scroll to Top