Fréttabréf 2005-2006

 

 Frá Umdæmisstjórn  

 

Kæru Inner Wheel félagar.  

Með hækkandi sól getum við verið vissar um að vorið er fram undan. Vorið er líka fram undan hjá okkur í umdæminu og við erum komnar á fulla ferð að undirbúa umdæmisþingið, sem haldið verður í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju laugardaginn 20. maí n.k. og sagt er frá annars staðar í blaðinu.


Eftir að við tókum á móti öllum gögnum frá fyrri umdæmisstjórn og þökkuðum þeim fyrir vel unnin störf, hittumst við reglulega á fundum og höfum líka haft samband í gegnum tölvu. Við höfum haft ánægju af að hittast og starfa fyrir Inner Wheel félaga á Íslandi.

 

Ein af skyldum umdæmisstjóra er að heimsækja alla klúbbana á starfsárinu. Við erum núna tæplega 290 félagar í 8 klúbbum og hafði umdæmisstjóri mikla ánægju af að heimsækja þá alla. Þetta er eitt  skemmtilegasta verkefni umdæmisstjóra og vil ég þakka öllum klúbbum fyrir frábærar og hlýjar móttökur. Þótt form Inner Wheel fundanna sé alls staðar í nokkuð föstum skorðum, er dagskrá þeirra mismunandi og efni afar fjölbreytt. Höldum áfram að vinna í anda Inner Wheel hreyfingarinnar af gleði og einlægni.

 

Ég vona að við sjáum sem flesta félaga úr öllum klúbbum á umdæmisþinginu .

 

STUÐNINGUR VEITIR STYRK

 

Með Inner Wheel kveðju

f.h. Umdæmisstjórn

Guðrún B. Jónsson

Umdæmisstjóri IW 2005-2006

 

 

 

 

 

  

 

  

 

 

 

 

 

 

sunnudagur 5 september 09 2010
Nýjustu fréttir
23. umdæmisþing Inner Wheel verður haldið 8. maí 2010. Nánari upplýsingar birtast fljótlega. Stjórnin...
Kl. 10:00 Skráning og kaffiKl. 11:00 Formót sett - kynning þátttakenda Fræðsla fyrir verðandi forseta,...
Kæru Inner Wheel konur!Umdæmisþing okkar á þessu starfsári verður haldið laugardaginn 16. maí...